Dagsetning:
Refworld 2007
Refworld er leiðandi í að miðla upplýsingum sem þarf til þess að taka vel ígrundaðar ákvarðanir um réttarstöðu flóttamanna. Refworld hefur að geyma mikið safn af skýrslum um ástandið í þeim löndum sem flóttamenn koma frá, einnig stefnumótandi skjöl og álitsgerðir auk skjala um þann lagaramma sem gildir alþjóðlega og í einstökum löndum. Upplýsingar þessar hafa verið valdar af kostgæfni og þeim safnað saman frá útibúum Flóttamannastofnunarinnar víða um heim, ríkisstjórnum, stofnunum og samtökum sem starfa á einstökum svæðum eða á alþjóðavísu, frá rannsóknarstofnunum og frá dómsaðilum.
Þessi nýi upplýsingabrunnur, Refworld 2007, er nú á veraldarvefnum en vefurinn var opnaður 14. júní 2007 í aðalstöðvum Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna. Refworld 2007 er upplýsingabrunnur um þá vernd sem veita ber flóttamönnum og er hann að finna á slóðinni http://www.refworld.org. Þessi upplýsingabrunnur er bæði nútímalegur og tæknivæddur og honum er ætlað að auðvelda ákvarðanatöku um réttarstöðu flóttamanna þannig að hún sé vel ígrunduð, skilvirk og styðjist við staðreyndir.
Allar upplýsingar sem Refworld hefur að geyma eru nú í fyrsta sinn aðgengilegar öllu starfsfólki Flóttamannastofnunarinnar, samstarfsaðilum hennar og öllum almenningi án endurgjalds. Meðal þess sem þar er að finna eru skýrslur um einstök lönd, upplýsingar um landsbundna löggjöf og fordæmisrétt auk opinberrar stefnu og leiðbeininga frá Flóttamannastofnuninni um þá vernd sem veita ber flóttamönnum.
Helstu kostir upplýsingabrunnsins Refworld:
- Meira en 76.000 skjöl sem fjalla um þau lönd sem flóttamenn koma frá og um meðferð hælisumsókna og um þau grundvallaratriði sem gilda um vernd flóttamanna.
- Upplýsingar eru uppfærðar reglulega.
- Ýmis skjöl er hægt að sjá í fullri lengd en samið hefur verið við helstu samstarfsaðila um að skiptast á upplýsingum.
- Ýmis skjöl eins og t.d. álitsgerðir Flóttamannastofnunarinnar um einstök lönd og málefni, skýrslur frá öðrum aðilum um aðstæður í einstökum löndum, skjöl frá alþjóða- og landsdómstólum sem veita upplýsingar um fordæmisrétt, upplýsingar um landsbundna löggjöf, rannsóknarskýrslur og fræðsluefni fyrir starfsfólk.
- Framúrskarandi og notendavænt viðmót – auðvelt að fletta og leita.
|
 |
|