Landakort Flóttamannastofnunar SÞ

Að setja flóttamenn á kortið
Landakort eru ómissandi fyrir starfsemi Flóttamannastofnunar SÞ um allan heim. Sem dæmi þá geta þau dregið upp mynd af staðsetningu fólks sem er neytt til að flýja heimili sín eða staðsetningu sem ogskipan og innviði flóttamannabúða. Kortin geta einnig sýnt umhverfisáhrifin sem flóttamannabúðir hafa á nærliggjandi svæði. Þesskonar auðmeltanlegar myndrænar upplýsingar eru ómetanlegar fyrir starfsfólk Flóttamannastofnunar SÞ. Með því að fara inná kortahluta síðunnar unhcr.org getur þú einnig fundið öll kort sem Flóttamannastofnun SÞ býður uppá.
Kortagrunnur á Google Earth
Kortagrunnurinn á Google Earth fer með þig í sýndarferðalag með Flóttamannastofnun SÞ um aðal umrótarsvæði heimsins og gefur innsýn í þá mannúðaraðstoð sem er veitt fórnarlömbum á svæðunum.
Sittu fyrir framan tölvuna þína og með örfáum smellum getur þú séð, heyrt og aukið skilning þinn á því hvernig það er að vera flóttamaður.
Staðsetning flóttamannabúðanna og svæðin þar umkring eru ekki það eina sem er sýnilegt, einnig er hægt að fylgjast með daglegu lífi eins og menntun og heilsugæslu á myndum, lesmáli og á myndböndum. Á nokkrum sekúndum færir Google Earth daglegt líf úr flóttamannabúðum í þúsund kílómetra fjarlægð inn á heimili þitt eða kennslustofu.
Til að hefja ferðalagið sækið kortagrunn Flóttamannastofnunar á Google Earth. Hér er hægt að hlaða niður Google Earth forriti.








