RefWorld

© UNHCR / T. Makeeva
Brautryðjandi tæki til upplýsingaöflunar
Refworld er leiðandi uppspretta upplýsinga sem nauðsynlegt er að hafa er taka þarf vandaðar ákvarðanir um réttarstöðu flóttamanna. Síðan inniheldur víðtækar upplýsingar um skýrslur og upplýsingar er tengjast ástandi í upprunalöndum, stefnuskjölum og afstöðuskjölum og skjölum sem tengjast skipan alþjóðalaga og löggjafar einstakra ríkja. Upplýsingum hefur verið safnað vandlega saman frá umdæmis- og vettvangsskrifstofum Flóttamannastofnunar SÞ, ríkisstjórnum, alþjóðlegum-, svæðisbundnum og frjálsum félagasamtökum, fræðilegum stofnunum og dómstólum. Refworld síðan er uppfærð daglega.








