Staðreyndir og tölur

Saga flóttamanna í tölum
Flóttamannastofnun SÞ leitast við að stuðla að upplýstri ákvarðanatöku og almennrar umræðu með því að veita nákvæma, viðeigandi og uppfærða tölfræði. Á heimasíðu Flóttamannastofnunarinnar www.unhcr.org finnur þú gögn, upplýsingar, grundvöll til að skoða gagnvirkar og aðgengilegar upplýsingar og tölfræðilegar upplýsingar um fólk sem Flóttamannastofnun SÞ hjálpar, en það eru: flóttamenn, hælisleitendur, flóttamenn sem hafa snúið aftur til síns heima, fólk sem er á vergangi innan eigin landamæra og fólk án ríkisfangs um allan heim. Á heimasíðunni eru einnig aðgengilegar og nákvæmar upplýsingar um það land sem sótt er um hæli í sem og; upprunaland, kyn, aldur staðsetningu og lagalega stöðu flóttamanna.
Upplýsingasöfnun um gæði flóttamannaverndar og verkefni Flóttamannastofnunar SÞ er sífellt að verða betri.








