United Nations High Commissioner for Refugees

Starfsmannatölur Flóttamannastofnunar SÞ

Flóttamannastofnun Sameinuðu Þjóðanna starfar í 123 löndum en starfsfólk stofnunarinnar er með aðsetur á samtals 396 skrifstofum og svæðum.

Á vegum Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna  starfa um það bil 7.190 starfsmenn, þar af eru 5.440 þeirra innfæddir starfsmenn sem starfa hjá svæðisskrifstofum á vettvangi og 1.740 alþjóðlegir sendifulltrúar.

Um 80 prósent starfsmanna Flóttamannastofnunarinnar starfa á vettvangi. Við erum með um 700 starfsmenn við höfuðstöðvar Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna. í Genf og 230 starfsmenn vinna á alþjóðlegu þjónustumiðstöðinni í Búdapest, en hún var stofnsett árið 2008 til að takast á við stjórnsýsluleg verkefni, þar með talið mannauðsstjórnun.

Á umdæmisskrifstofu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna í Stokkhólmi starfa 13 starfsmenn, þar með talið er starfsmaður umdæmisskrifstofunnar sem er með aðsetur í Vilníus í Litháen.

Starfsfólk okkar vinnur að mjög fjölbreyttum verkefnum, þar með talið lagalegri vernd flóttamanna, samfélagsþjónustu, erlendum samskiptum, vörustjórnun, heilsu og kynferðismálum auk stjórnsýslu.

URL: UNHCR/is/hjalpargoegn/toelfraedi/starfsmannatoelur.html
copyright © 2001-2012 UNHCR - all rights reserved.