United Nations High Commissioner for Refugees

Útgefið efni

Publications
© UNHCR / B. Bannon

Máttur prentaðs orðs og ljósmynda

Útgáfa efnis er mikilvæg leið fyrir Flóttamannastofnun SÞ að breiða út upplýsingar um  stöðu flóttamanna og annarra sem falla undir umboð Flóttamannastofnunar.  Einnig er þetta góð leið til að miðla upplýsingum um verkefni stofnunarinnar á alheims- og heimavísu.Við gefum út fjölbreytt efni fyrir þá sem fylgjast með, allt frá grundvallarskjölum eins og flóttamannasamningur SÞ frá árinu 1951 til greinargerða um flóttamanna- og alþjóðalög sem og rannsóknarskýrslur og skýrslur sem leitast við að meta árangur af verkefnum.  Umfjallanir um aðgerðir stofnunarinnar um heiminn má finna í tveimur árlegum útgáfum:  the Global Appeal og the Global Report.

The Global Appeal (gefið út í desember) er ómetanlegur leiðarvísir um áætlun Flóttamannastofnunar SÞ á komandi ári, bæði fyrir hinn almenna lesanda og einnig þá sem fjármagna starfsemi stofnunarinnar.

Í Global Report (gefið út í júní) er að finna heildstæða sýn á þau ögrandi verkefni sem Flóttamannastofnun stendur frami fyrir hverju sinni og það sem hefur áunnist á heimsvísu á árinu á undan. Þú finnur báðar útgáfur með því að nota krækjuna hér fyrir neðan.

Umdæmisskrifstofan í Stokkhólmi gefur einnig út sínar eigin skýrslur og önnur skjöl.


URL: UNHCR/is/hjalpargoegn/utgefid-efni.html
copyright © 2001-2012 UNHCR - all rights reserved.