United Nations High Commissioner for Refugees

Taktu þátt.

Haiti / Children outside an UNHCR tent in Camp Hope. © UNHCR / J. Björgvinsson
Haiti / Children outside an UNHCR tent in Camp Hope. © UNHCR / J. Björgvinsson

Þú getur hjálpað!

Það eru margar leiðir til að hjálpa Flóttamannastofnun S.Þ. – beint og óbeint. Ein augljós leið er að gefa fjármagn, sem mun fara óskert til hjálpar starfsemi okkar á vettvangi um  allan heiminn.  Það er auðvelt ferli og þú getur gefið þá upphæð sem þér hentar – allt hjálpar til.  Klikkið bara á gefa krækjuna hér að neðan!

Mikilvæg leið til að hjálpa er að vekja fólk til umhugsunar.  Fylgist með Flóttamannastofnun S.Þ. á Facebook, Twitter eða Flickr og hjálpið okkur að koma á framfæri upplýsingum.

Þú getur einnig skipulagt viðburð í skólanum þínum eða á vinnustað á Alþjóðadegi flóttamanna, sem er haldinn hátíðlegur þann 20.júní ár hvert.  Hvernig væri til dæmis að tilnefna einhvern til Nansen verðlaunanna?

Annað sem hægt er að gera til að vekja umhugsun hjá fólki er að sviðsetja hlutverkaleikinn Á flótta (e.Passages).Hlutverkaleikurinn er áhrifarík leið til að upplifa hvað flóttamenn ganga í gegnum.  Á flótta má einnig nota sem kennslutæki.  Ef þig langar að vita meira, vinsamlegast hafið samband við umdæmisskrifstofu Flóttamannastofnunar SÞ í Stokkhólmi.

Ef þú ert ungur nemandi getur þú stungið uppá því við kennarann þinn að bekkurinn þinn fari í gagnvirka leikinn Vefleikinn flótta, sem er ókeypis og er til á mörgum tungumálum, þar á meðal á íslensku.

Sjálfboðaliðastarf er mikilvæg leið til að láta gott af sér leiða.  Sjálfboðaliðar hafa verið hluti af teymi Flóttamannastofnunar SÞ og sumra samstarfsaðila, þ.m.t. í Pakistan, Sómalíu, Súdan, Balkanskaga, Tímor og Afríku.  Sjálfboðaliðastarfsemi Sameinuðu þjóðanna (UNV) er brennidepill í sjálfboðaliðastarfsemi innan kerfis Sameinuðu þjóðanna.

Gefa til hjálparstarfs

 

 

URL: UNHCR/is/styrkid-okkur/taktu-thatt.html
copyright © 2001-2012 UNHCR - all rights reserved.