Góðgerðarsendiherrar Flóttamannastofnunar Sameinuðu Þjóðanna

Andlit Flóttamannastofnunar út á við
Stuðningsmenn Flóttamannastofnunar sem eru áberandi í þjóðfélaginu eiga það sameiginlega markmið að vilja hjálpa þeim sem eru landflótta og að hjálpa til við að vekja heimsvitund um þjáningar og nauðsynjar þeirra sem varnarlausir eru.
Hin heimsþekkta sænsk-ameríska sópransöngkona Barbara Hendricks hefur gífurlega reynslu af þessu starfi. Hún er sú eina sem hefur verið útnefnd Heiðurs-góðgerðarsendiherra Flóttamannadeildar S.Þ. til lífstíðar.
Frú Hendricks hefur starfað með Flóttamannadeild Sameinuðu þjóðanna síðan árið 1987.
Ameríska leikkonan Angelina Jolie hefur heimsótt meira en 20 lönd síðan hún var útnefnd góðgerðarsendiherra árið 2001 og nær svo sannarlega til heimsins.
Aðrir góðgerðarsendiherrar Flóttamannastofnunar Sameinuðu Þjóðanna eru ítalski fatahönnuðurinn Giorgio Armani, tyrkneska söngkonan Muazzez Ersoy, spænski sjónvarpsmaðurinn Jesus Vazquez, argentínski sápuóperuleikarinn Osvaldo Laport og franski lagahöfundurinn og söngvarinn Julien Clerc.








