United Nations High Commissioner for Refugees

UNHCR's history

Vietnamese boat people in Malaysia
Vietnamese boat people in Malaysia. © UNHCR / 1978 / K. Gaugler

Mannúðarsamtök á heimsvísu af auðmjúkum uppruna

Flóttamannastofnun Sameinuðu Þjóðanna var stofnuð í kjölfar seinni heimstyrjaldarinnar til hjálpar Evrópubúum sem voru á landflótta.  Stofnuninni var komið á þann 14.desember 1950 af Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna og hafði þriggja ára starfsumboð til að ljúka verkinu og átti síðan að vera lögð niður.  Ári síðar, þann 28.júlí, var Allsherjarþing Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna tekin í notkun. Allsherjarþingið er lagaleg undirstaða til hjálpar flóttamönnum og einnig stofnsamþykkt sem leiðir vinnu Flóttamannastofnunar Sameinuðu Þjóðanna.

Árið 1956 horfðist Flóttamannastofnun S.Þ. í augu við fyrsta stórfellda hættuástandið þegar tala flóttamanna reis er Sovéther knésetti Ungversku Byltinguna.  Allar raddir um að Flóttamannastofnun S.Þ. yrði óþörf þögnuðu þar eftir.  Á sjöunda áratugnum, þegar nýlenduveldin í Afríku leystust upp, kom upp fyrsta flóttamannahættuástand heimsálfunnar  og þörf var á aðstoð frá Flóttamannastofnun S.Þ.  Á næstu tveimur áratugum þurfti Flóttamannastofnun að koma til hjálpar vegna vegalauss fólks í Asíu og Rómönsku Ameríku.  Í lok síðustu aldar voru komin upp ný flóttamannavandamál í Afríku og nýjar flóttamannabylgjur í Evrópu eftir röð stríða á Balkanskaga.

Í byrjun 21.aldar hefur Flóttamannastofnun hjálpað vegna hættuástands í Afríku, til dæmis í Lýðræðisríkinu Kongó, Sómalíu og einnig í Asíu og sérstaklega vegna 30 ára viðvarandi flóttamannavanda í Afganistan.  Á sama tíma hefur Flóttamannastofnun S.Þ. verið beðin um að nýta sérþekkingu sína til hjálpar margra sem eru landflótta innan eigin lands vegna átaka.  Stofnunin hefur aukið við hlutverk sitt í að hjálpa fólki sem er án ríkisfangs. Þetta er stór hópur fólks, milljónir talsins, sem litið er framhjá og eiga á hættu að vera neitað um grunnréttindi vegna þess að þau hafa ekkert ríkisfang.  Í sumum heimshlutum, þ.m.t. Afríku og Rómönsku Ameríku hefur upprunalega umboðið frá árinu 1951 verið styrkt með samþykki staðbundinna löggerninga.

Árið 1954 hlaut stofnunin Friðarverðlaun Nóbels fyrir byltingarkennda vinnu til hjálpar flóttamanna í Evrópu.  Árið 1981 hlaut stofnunin önnur verðlaun fyrir að aðstoða flóttamenn um allan heim þar sem vitnað var til pólítískra hindrana sem stofnunin þurfti að kljást við.

Stofnun sem upprunalega var með þriggja ára tilskipun til að leysa flóttamannavanda mun halda uppá 60 ára afmæli sitt árið 2011, meðvituð um það að þörfin á mannúðlegri aðstoð mun líklegast ekki hverfa.

Til að kynnast betur hvernig Flóttamannastofnun Sameinuðu Þjóðanna er stjórnað og skipulag hennar, smellið hér.

Saga

Flótti á svæðinu

Uppflosnun fólks og tilflutningar innan Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna á fimmta áratugnum.

Nóbelsverðlaunin

"Yfirlýsingu til flóttamanna heimsins um að þeim hafi ekki verið gleymt".

URL: UNHCR/is/um-okkur/saga/saga-flottamannastofnunar-sth.html
copyright © 2001-2012 UNHCR - all rights reserved.