Samstarfsaðilar
Að starfa með samstarfsaðilum
Flóttamannastofnun SÞ er í samstarfi með mörgum mismunandi aðilum um allan heim eins og ríkisstjórnum, öðrum stofnunum innan SÞ, alþjóðastofnunum- og milliríkjastofnunum. Flóttamannastofnun starfar einnig með frjálsum félagasamtökum (NGO). Flóttamannastofnun SÞ fær mest af styrkjum til starfsemi sinnar með framlagi frá ríkisstjórnum.
Samstarf Flóttamannastofnunar SÞ við aðrar stofnanir innan SÞ og alþjóðlegar stofnanir eru ómissandi fyrir samhæfingu í liðveislu við aðgerðir til hjálpar flóttamönnum.
Frjáls félagasamtök eru mikilvægur samstarfsaðili Flóttamannastofnunar sem leggja áherslu á sanngjarna meðhöndlum flóttamanna, veita stuðning og stuðning til hælisleitenda og hjálpa þeim að aðlagast nýjum samfélögum.
Frjáls félagasamtök hjálpa einnig til við aðstæður eins og í flóttamannabúðum með því að veita mat og aðrar nauðsynjar, læknishjálp, aðstoð til lengri tíma og samfélagsþjónustu. Flóttamannastofnun SÞ er starfar með meira en 650 frjálsum félagasamtökum, bæði innanlands og alþjóðlegum. Stór hluti fjármagns Flóttamannastofnunar SÞ fer í gegnum framkvæmdaraðlila okkar, að mestu leyti frjálsra félagasamtaka.
Flóttamannastofnun SÞ vinnur innan hvers umdæmis með nokkrum frjálsum félagasamtökum.
Danska Flóttamannaráðið
Flóttamannastofnun SÞ og danska flóttamannaráðið (DRC) hafa gert á milli sín formlegan samning um skilvirkt samstarf á vettvangi flóttamannaverndar, málsvarastarfs og neyðarviðbrögðum. Þessi samningur styrkir einnig núverandi samstarf á vettvangi flutninga, skipulagningar, neyðarskýla og að koma starfsfólki til starfa á vettvangi.
Norska Flóttamannaráðið
Flóttamannastofnun SÞ og norska flóttamannaráðið hafa gert á milli sín samning sem miðar að því að bæta vernd fólks sem er á vergangi innan eigin landamæra um allan heim. Flóttamannastofnun SÞ og norska nlóttamannaráðið vinna að stefnumótandi samstarfi á heimsvísu sem og í ákveðnum verkefnum með áherslu á nánara samstarfi á vettvangi til að vernda og aðstoða fólk á vergangi innan eigin landamæra. Flóttamannastofnun SÞ gegnir ákveðnu forystuhlutverki þegar kemur að verkefnum um allan heim sem snúa að fólki á vergangi innan eigin landamæra.
MSB – Almannavarnir Svíþjóðar
Almannavarnir Svíþjóðar eru ekki frjáls félagasamtök heldur opinber stofnun sem vinnur að því að fyrirbyggja, undirbúa, hafa umsjón með og draga lærdóm af neyðarástöndum, hættuástöndum og hamförum í Svíþjóð og annars staðar í heiminum. Þegar neyðarástand eða hættuástand á sér stað virkja almannavarnir Svíþjóðar stuðning með því að bjóða fram sérfræðinga, tæki og heildstæða þjónustu. Almannavarnir Svíþjóðar veitir þjónustu á vettvangi sem miðar að því að draga úr hættunni á hamförum, leitun og björgun, flutningum, skipulagi sem og að útvega skrifstofuaðstoð og húsnæði.
Almannavarnir Svíþjóðar veita einnig aðstoð og þjónustu á sviði heilsugæslu, umhverfisverndar, fjarlægja jarðsprengjur og aðstoða samfélög við skjóta uppbyggingu.. Almannavarnir Svíþjóðar eru með viðbúnað allan sólarhringinn allan ársins hring í samstarfi við Þróunarsamvinnustofnun Svíþjóðar og ef fram kemur beiðni um aðstoð frá samstarfsaðilum er hægt að bregðast skjótt við. Almannavarnir Svíþjóðar og Flóttamannastofnun SÞ hafa verið í nánu samstarfi síðan snemma á tíunda áratugnum. Ásamt því að veita ofangreinda aðstoð þá vinna Almannavarnir Svíþjóðar og Flóttamannastofnun SÞ saman í þjálfun fyrir starfsmenn Flóttamannastofnunar sem kunna að verða kallaðir út til starfa á svæðum þar sem neyðarástand ríkir.
Barnaheill (Save the Children)
Með það að markmiði að styrkja starf Flóttamannastofnunar SÞ í samfélagsþjónustu sem og í barnavernd senda Barnaheill í Noregi og Svíþjóð sérfræðinga í samfélagsþjónustu og barnavernd í neyðarverkefni Flóttamannastofnunar SÞ.
Barnahell í Danmörku starfar innan sama ramma með Flóttamannastofnun SÞ.
Að auki starfar Umdæmisskrifstofa Flóttamannastofnunar SÞ í Stokkhólmi með frjálsum félagasamtökum og Rauða krossinum á Norðurlöndunum.
Rauði krossinn í Litháen er samstarfsaðili Flóttamannastofnunar SÞ. Starfsemin felur í sér lagalega aðstoð, félagslegan stuðning og ráðgjöf til hælisleitenda og flóttamanna.
Þetta eru megin samstarfsaðilar í umdæminu
- The Danish Refugee Council - Danska flóttamannaráðið
- The Finnish Red Cross - Rauði krossinn í Finnlandi
- The Finnish Refugee Advice center - Upplýsingamiðstöð flóttamanna í Finnlandi
- The Finnish Refugee Council - Finnska flóttamannaráðið
- The Icelandic Red Cross - Rauði krossinn á Íslandi
- The Norwegian Organisation for Asylum seekers - Norska hælisleitenda-stofnunin
- The Norwegian Refugee Council - Norska flóttamannaráðið
- The Advisory Bureau for Asylum seekers and Refugees in Sweden
- The Swedish Red Cross








