United Nations High Commissioner for Refugees

Markmið Flóttamannadeildar Sameinuðu Þjóðanna

Tunisia / People fleeing violence in Libya. © UNHCR / A. Duclos / 28 February 2011
Tunisia / People fleeing violence in Libya. © UNHCR / A. Duclos / 28 February 2011

Flóttamannadeild Sameinuðu Þjóðanna – gildi okkar og markmið

Flóttamannadeild Sameinuðu Þjóðanna starfar í umboði Sameinuðu Þjóðanna og eiga að leiða og samstilla alþjóðlegar aðgerðir til verndar flóttamanna og til lausnar á vanda flóttamanna um allan heim.

Megintilgangur Flóttamannadeildar S.Þ. er að vernda réttindi og velferð flóttamanna.  Hluti af viðleitninni til að ná þessu markmiði er að tryggja að allir geti nýtt sér rétt sinn að leita eftir hæli og leitað skjóls í öðru ríki og geti snúið aftur heim af fúsum vilja.

Með því að aðstoða flóttamenn við að snúa aftur til síns heimalands eða að setjast að í öðru til frambúðar leitast Flóttamannadeils S.Þ. að því að finna varanlegar lausnir fyrir ástand þeirra.

Vinna Flóttamannadeildar S.Þ. eru gefin út með tilskipun úr lögum stofnunarinnar, stýrt af allsherjarþingi Sameinuðu Þjóðanna árið 1951 varðandi stöðu flóttamanna og siðareglurnar frá 1967.  Alþjóðleg lög um flóttamenn sjá fyrir mikilvægri grind af meginreglum mannúðlegrar starfsemi Flóttamannastarfsmanna S.Þ.

Til stuðnings kjarna starfseminnar fyrir hönd flóttamanna hafa Framkvæmdastjórn S.Þ. og Allsherjarþing S.Þ. samþykkt að stofnunin eigi aðild að öðrum hópum.  Þar á meðal eru fyrrum flóttamenn sem hafa snúið aftur til heimalands síns, flóttamenn sem eru á vergangi innan eigin landamæra, fólk sem er ríkisfangslaust og fólk sem er með umdeilt ríkisfang.

Flóttamannadeild S.Þ. leitast við að fækka þeim málum þar sem fólk er neytt til að vera á vergangi með því að hvetja ríki og aðrar stofnanir til að skapa aðstæður sem stuðla að vernd á mannréttindum og friðsamlegra lausna á deilum.  Flóttamannadeild S.Þ. reynir einnig að styrkja samþættingu flóttamanna er þeir snúa aftur til upprunalands síns, þarmeð að afstýra því að aðstæður endurtaki sig sem valdi því að fólk leggi á landflótta.

Flóttamannadeild Sameinuðu Þjóðanna er hlutlaus stofnun sem býður uppá vernd og aðstoð til flóttamanna og annara á grundvelli nauðsynja og án tillits til kynþáttar, trúar, stjórnmálaskoðana og kyns.  Í öllum störfum sínum beinir Flóttamannadeild Sameinuðu Þjóðanna sérstaklega athyginni að þörfum barna og leitast til að stuðla að jöfnum réttindum kvenna og stúlkna.

Í viðleitni þeirra við að vernda flóttamenn og stuðla að lausnum á vandamálum þeirra vinnur Flóttamannadeild S.Þ. með stjórnvöldum, samtökum á svæðinu, alþjóðlegum og frjálsum félagasamtökum.  Flóttamannastofnun S.Þ. er skuldbundin því að taka þátt, vitandi að flóttamenn og aðrir sem njóta góðs af starfsemi stofnunarinnar ættu að fá ráðgjöf þegar teknar eru ákvarðanir sem hafa áhrif á líf þeirra.

Með skírskotun til aðgerða þeirra fyrir hönd flóttamanna og fólks á vergangi innan eigin landamæra gerir Flóttamannastofnun S.Þ. sitt ýtrasta til að efla tilgang og grundvallarreglur Sáttmála Sameinuðu Þjóðanna.  Það er að viðhalda friði og öryggi í heiminum, að byggja upp vinasambönd á milli þjóða og að hvetja til virðingar fyrir mannréttindum og grundvallar frelsis.

URL: UNHCR/is/um-okkur/stefnuyfirlysing.html
copyright © 2001-2012 UNHCR - all rights reserved.