United Nations High Commissioner for Refugees

Aðstoð

Assistance
© UNHCR / B. Bannon

Hjálparhönd

Fólk sem neyðist til að flýja heimili sín og leita öryggis í öðru landi, eða á öðrum stað í eigin landi, þarf á hjálp að halda.  Flestir flóttamenn og fólk sem er á vergangi innan eigin landamæra yfirgefa heimili sín með litlar eða engar eigur, og jafnvel þau sem hafa einhver aðföng klára þau fljótt.

Flóttamannastofnun SÞ og samstarfsaðilar hennar veita lífsnauðsynlega og fjölbreytta aðstoð. Fyrst og fremst veitum við neyðaraðstoð til bjargar mannslífum.  Í þessu felst að útvega hreint vatn,sápu, hreinlæti, ferðasalerni, losa skólp, heilsugæslu, efni til að byggja skjól og aðra hluti til aðstoðar eins og teppi, svefndýnur, næturgögn/koppa, heimilisvörur og stundum mat.  Önnur mikilvæg aðstoð sem við veitum er skráning flóttamanna, aðstoð og ráðgjöf við hælisumsóknir, menntun og ráðgjöf fyrir og í þágu flóttamanna.  Aðstoð Flóttamannastofnunar SÞ nær einnig til fólks sem snýr aftur til heimalands síns – við gerum ráðstafanir um samgöngur á landi, sjó og lofti og veitum þeim er snúa aftur aðstoðar við endurkomuna.  Stofnunin er einnig viðriðin verkefni sem lúta að aðlögun flóttafólks í því landi sem það býr og enduraðlögun þeirra flóttamanna sem snúa tilbaka. Þar á meðal eru verkefni sem gera flóttafólki kleift að afla sér tekna og við endurbyggingu skipulagsgerðar.

URL: UNHCR/is/vid-gerum/adstod.html
copyright © 2001-2012 UNHCR - all rights reserved.