Blandaðir fólksflutningar

Allir á sama báti: erfiðleikar sem tengjast blönduðum fólksflutningum
Flóttamenn og farendur (e. migrants) nota oft sömu leiðir og samöngutæki en verndarþarfir þeirra eru ólíkar.
Þættir sem hafa stuðlað að aukningu á alþjóðlegum fólksflutningum eru með annara hnattvæðing og aukin mismunun á lífsskilyrðum bæði innan landanna og milli landa. Margt fólk sem er flytur á milli landa í dag eru að sækjast eftir betri möguleikum til atvinnu eða menntunar, aðrir vilja sameinast fjölskyldum sínum og enn aðrir eru á flótta undan ofsóknum, stríðsárekstrum eða gegndarlausu ofbeldií heimalöndum sínum.
Þótt flóttamenn og hælisleitendur séu aðeins lítill hluti af því fólki sem flytur á milli landa ferðast þeir oft samferða farendum. Margir af þessum flutningum eru óskipulagðir. Þeir eiga sér oft stað án skrásetningar þar sem oft er farið milli landa utan landamærastöðva eða að fólki er smyglað milli landa.
Flóttamannastofnun fellst á að landamæraeftirlit er mikilvægt til að berjast gegn alþjóðlegri glæpastarfsemi eins og smygli og mansali. En Flóttamannastofnun SÞ leggur áherslu á þörfina á hagnýtri vernd til að tryggja að slíkar öryggisaðgerðir séu ekki nýttar á ógagnrýninn eða ósamsvarandi hátt og leiða ekki til þess að flóttamönnum sé vísað aftur til landa þar sem líf þeirra eða frelsi er í hættu.
Flóttamannastofnun SÞ vinnur með ríkisstjórnum um allan heim til að hjálpa þeim að bregðast við þessar áskoranir á samhangandi og gagnlegan hátt.








