Fjáröflun

Að treysta á stuðningsaðila
Flóttamannastofnun SÞ er nánast eingöngu fjármögnuð með beinum valfrjálsum framlögum. Meginhluti framlaga til stofnunarinnar kemur frá ríkisstjórnum og framkvæmdastjórn Evrópusambandsins. Stofnunin fær einnig lítinn árlegan styrk úr ráðstöfunarfé Sameinuðu þjóðanna sem nýtist í stjórnsýslukostnað.
Við fáum einnig mikilvæg framlög úr einkageiranum. Umdæmisskrifstofan fyrir Eystarsaltslöndin og Norðurlöndin aflar fjármagns bæði frá einstaklingum, styrktarsjóðum og fyrirtækjum. Sænska póstnúmera lottóið er mikilvægur fjáröflunarbakhjarl undæmisskrifstofunnar.
Fyrir hverja árlega fjárhagsáætlun Flóttamannastofnunar SÞ er framlögum safnað en í fjárhagsáætlun eru meðtaldar áætlanir sem gera ráð fyrir hefðbundnum aðgerðum sem stofnunin fæst við. Þörfin hverju sinni kemur fram í alþjóðlegu hjálparákalli þar sem stofnunin lýsir þeim verkefnum sem hún stendur frammi fyrir og hvaða fjármagn hún þarf til að sinna þeim. En Flóttamannastofnun getur einnig sent út viðbótarhjálparbeiðnir þar sem óskað er eftir aukafjárveitingum til að bregðast neyðarástandi sem ekki var hægt að sjá fyrir. Á hverju ári gefur Flóttamannastofnun SÞ út skýrslu sem kallast „Global Report“ sem skýrir hvernig fjárveitingunum hefur verið varið um allan heim.
Á síðastliðnum árum hefur Flóttamannastofnun SÞ tekið saman alþjóðlega þarfagreiningu (e. Global Needs Assessment) þar sem leitast er við að meta heildstætt hversu mikið fjármagn stofnunin þarf til að geta brugðist við helstu grunnþörfum skjólstæðinga sinna.









Estonia (Horn of Africa)
Sweden
Norway (resettlement)
Iceland (Libya)
Finland (Libya)
Lithuania (Libya)
Denmark 