Uppbygging á hæfni

Aðstoð við að auka hæfni
Þegar á að vernda fólk og samfélög er mikilvægt að styrkja hæfni ríkja með því að hjálpa þeim að standa undir alþjóðlegum lagalegum skuldbindingum til að hjálpa flóttamönnum um allan heim. Þetta er mikilvægur hluti af starfsemi Flóttamannastofnunar SÞ í Eystrasaltslöndunum og Norðurlöndunum.
Lykilatriði er að kynna flóttamannalög. Við kynnum flóttamannalög með því að kynna og gera aðgengilegar leiðbeiningareglur Flóttamannastofnunar SÞ, veita löfræðileg álit, gera grein fyrir afstöðu Flóttamannastofnunar í dómsmálum sem varða flóttamannalög og flóttafólk og með því að skipuleggja málstofur um tiltekin upprunalönd hælisleitenda.
Umdæmisskrifstofa Flóttamannastofnunar SÞ í Stokkhólmi skipuleggur og tekur þátt í uppbyggingu á hæfni og þjálfun fyrir alla sem koma að ferli hælisumsóknar: meðal annars þá sem fara yfir og taka ákvarðanir um hælisumsóknir, dómara og lögfræðinga. Þemaþjálfanir eru þróaðar fyrir þá sem taka ákvarðanir og lögfræðinga um skilgreiningu á því hver sé flóttamaður og um flóttamannaástand í heiminum. Við veitum fyrirlestra í grunnnámskeiðum í flóttamannalögum í lagadeildum háskólanna, lögreglu- og landamæravarðaskólum. Önnur leið til að auka hæfni er marktæk gæðatrygging sem er þróuð í samvinnu við viðeigandi yfirvöld.








