Flóttamannastofnun SÞ á svæðinu

Starfsemi í Norðurlöndunum og Eystrarsaltslöndunum
Málsvörn, varanlegar lausnir og uppbygging á hæfni eru hornsteinar starfsemi Flóttamannastofnunar SÞ í Eystrarsaltslöndunum og Norðurlöndunum. Við aðstoðum ríkisstjórnir við að fylgja samþykktinni frá þingi Sameinuðu Þjóðanna 1951 með því að gefa ráð, þjálfa og veita upplýsingar. Flóttamannastofnun aðstoðar einnig frjáls félagasamtök og hælislögfræðinga. Alþjóðleg lög um flóttamenn, tilskipanir Evrópusambandsins, handbækur og viðmiðunarreglur Flóttamannastofnunar SÞ , ásamt víðtækri þekkingu á innlendri löggjöf mynda grunnin að vinnunni að lagalegri vernd í umdæminu.
Ómissandi hluti í starfi Flóttamannastofnunar SÞ er að setja málefni flóttamanna og hælisleitenda á dagskrá, auka meðvitund og að sjá fyrir réttum og uppfærðum upplýsingum um ástand milljóna flóttamanna í heiminum. Umdæmisskrifstofan skipuleggur opinberar upplýsingaherferðir, sýningar og viðburði í samstarfi við ríkið, yfirvöld á svæðinu og frjáls félagasamtök.
Flóttamannastofnun Sameinuðu Þjóðanna er nánast eingöngu fjármögnuð með frjálsum framlögum, fyrst og fremst frá ríkisstofnunum. Framlög úr einkageiranum eru sífellt mikilvægari í fjármögnun á starfsemi Flóttamannastofnunar SÞ um heiminn. Umdæmisskrifstofan sér um fjárútvegun á öllu svæðinu.








