United Nations High Commissioner for Refugees

Vernd

Statelessness in Bangladesh: The Biharis. © UNHCR/G.M.B.Akash/June 2006
Statelessness in Bangladesh: The Biharis. © UNHCR/G.M.B.Akash/June 2006

Öryggisnet

Ríkið tryggir venjulega grunnréttindi og öryggi þegna sinna.  En þegar fólk verður að flóttamönnum hverfur þetta öryggisnet.  Flóttamenn sem eru að flýja stríð eða ofsóknir eru oft í varnarlausri stöðu.  Þau hljóta enga vernd frá þeirra eigin ríki – í raun er það oft þeirra eigin ríkisstjórn sem er að hóta því að ofsækja þau.  Ef önnur ríki taka ekki við þeim og vernda þau ekki, og hjálpa ekki þegar þau komast í landið, geta þau verið að dæma þau í óbærilegt ástand þar sem grunnréttindi þeirra, öryggi og, í sumum tilfellum líf þeirra, eru í hættu.

Lykilstefna Flóttamannastofnunar SÞ er að vernda milljónir rótarlaust eða ríkisfangslaust fólk.  Stofnunin gerir þetta á marga vegu:  hún tryggir þeim grunnmannréttindi í hælislöndum þeirra eða búsetulandi og tryggir að flóttamenn séu ekki sendir aftur heim óviljugir til lands þar sem þeir geta orðið fyrir ofsóknum.  Til lengri tíma hjálpar stofnunin flóttamönnum að finna viðeigandi varanlegar lausnir á ástandi þeirra; með því að senda þau aftur til síns heima af fúsum vilja; hjálpa þeim að samlagast í hælislöndum sínum eða að setjast aftur að í þriðja landinu.

Í mörgum löndum vinnur starfsfólk Flóttamannastofnunarinnar með öðrum félögum á margvísum staðsetningum, frá höfuðborgum til afskekktra flóttamannabúða og landamærasvæða.  Þau reyna að stuðla að eða veita lagalega og líkamlega vernd, og halda yfirvofandi hættu á líkamsárásum í lágmarki – að meðtöldu kynferðisofbeldi, sem margir flóttamenn verða fyrir, jafnvel í hælislöndum sínum. Þau reyna einnig að sjá tafarlaust  fyrir allavegna lágmarks skjóli, mat og vatni og heilsugæslu eftir fólksflótta, og taka með í reikninginn sérþarfir kvenna, barna, aldraðra og fatlaðra.


Hver er flóttamaður - Q&A

Flóttamenn – hverjir eru þeir? Spurningar og svör.

URL: UNHCR/is/vid-gerum/vernd.html
copyright © 2001-2012 UNHCR - all rights reserved.