United Nations High Commissioner for Refugees

Viðbrögð við neyðarástandi

Emergency Response
© UNHCR / R. Olchik

Viðbúnaður og viðbrögð við neyðarástandi

Til að undirbúa og bregðast við neyðarástandi hefur Flóttamannastofnun SÞ safnað saman fólki með fjölbreytta og mikilvæga fagkunnáttu sem er tilbúið að vera sent á vettvang hvar sem er í heiminum með litlum fyrirvara. Stofnunin hefur einnig búið til  varaforða (sem er ekki matur) í Kaupmannahöfn og Dubai til nota í neyðartilvikum sem á að auka við vörur sem eru á staðnum þar sem þörf er á hjálp. Við höfum komið á langtíma samkomulagi við flutningsmiðlanir og aðfangafyrirtæki, og komið á tengslakerfi um heiminn milli birgðasala, sérfræðiumboða og samstarfsfélaga.

Þetta þýðir að á hvaða tíma sem er hefur Flóttamannastofnun SÞ getuna til að bregðast við nýju neyðarástandi sem hefur áhrif á allt að 500þúsund manns.  Við getum einnig kallað meira 300 þjálfaða einstaklinga til starfa á innan við 3 sólarhringum.  Þessir sérfræðingar koma úr vaktaskrá Neyðaraðstoðarliðsins (ERT).  Flóttamannastofnun SÞ hefur einnig þróað aðferð til að kalla út fjármagn tafarlaust til að auðvelda viðbrögð við neyðaraðstöð án tafar.

URL: UNHCR/is/vid-gerum/vidbroegd-vid-neydarastandi.html
copyright © 2001-2012 UNHCR - all rights reserved.