Á flótta í eigin landi

Fólk á vergangi innan eigin landamæra
Fólk á vergangi innan eigin landamæra (e. Internally Displaced Persons) eru oft ranglega nefnd flóttamenn. Ólíkt flóttamönnum hafa þau ekki farið yfir alþjóðleg landamæri til að leita sér skjóls heldur verið á flótta innan eigin landamæra. Jafnvel þótt þau hafi flúið af sömu ástæðu og flóttamenn (vopnuð átök, almennt ofbeldi, brot á mannréttindum) nýtur fólk á vergangi innan eigin landamæra aðeins verndar eigin ríkisstjórnar, jafnvel þótt sú ríkisstjórn sé ástæða fyrir því að fólkið er á flótta. Sem ríkisborgarar halda þeir öllum sínum réttindum og eru vernduð samkvæmt bæði alþjóðlegum mannréttinda- og mannúðarlögum.
Upprunaleg umboð Flóttamannastofnunar SÞ nær ekki sérstaklega til fólks á vergangi innan eigin landamæra, en vegna sérhæfni stofnunarinnar í landflótta einstaklingum hefur hún aðstoðað milljónir manna sem eru á flótta innan eigin landamæra, nýlega í gegnum „þyrpingarnálgunina“. Með þessari nálgun er Flóttamannastofnun SÞ forystu um að koma til móts við verndar- og skjólþörf fólks á vergangi innan eigin landamæra, sem og skipulag og stjórnun þar sem fólk safnast saman..
Milljónir annara almennra borgara sem hafa orðið heimilislausir vegna náttúruhamfara eru einnig flokkaðir sem fólk á vergangi innan eigin landamæra. Flóttamannastofnun SÞ aðstoðar þennan hóp einungis í sérstökum tilfellum eins og í kjölfar Tsunami flóðbylgjunnar við Indlandshaf árið 2004, eftir jarðskjálftinn í Pakistan árið 2005 og fellibylurinn Nargis í Mjanmar árið 2008, eftir jarðskjálftinn á Haítí árið 2009 og í kjölfar flóðanna í Pakistan árið 2010.








