United Nations High Commissioner for Refugees

Aldraðir

Older People
© UNHCR / G.M.B. Akash

Aldraðir og berskjaldaðir

Það er takmörkuð meðvitund um réttindi, þarfir og framlag aldraðs fólks þegar neyðarástand ríkir. Þess vegna er mikilvægt að þeir sem taka ákvarðanir sem varða aðstoð og hjálp sé kunnugt um aðstæður eldra fólks og berskjaldaðra þar sem neyðarástand ríkir. Hjálparstarfsmenn og aðrir þurfa einnig að vera meðvitaðir um þarfir þeirra. Aldraðir flóttamenn og aldraðir sem eru á vergangi innan eigin landamæra hafa sérþarfir sem eru endurtekið vanrækt í undirbúningi mannúðarverkefna og á vettvangi.

Aldraðir geta sérstaklega verið viðkvæmir á tímum átaka og náttúruhamfara. Skortur á hreyfigetu, veik sjón og langvinnir sjúkdómar eins og liðagigt og gigt geta gert þeim erfiðara fyrir að sækja stuðning og hjálparstofnanir eiga það til að taka ekki tillit til þessara vandamála. Á umrótatímum er eldra fólk oft tregt til að yfirgefa heimili sín og eru því oft síðust til að flýja þá hættu sem að þeim steðjar. Þegar aldrað fólk er komið á flótta þjást þau af miklu umróti og verða oft félagslega einangfruð og aðskilin frá fjölskyldum sínum sem aftur eykur á það hversu berskjölduð þau eru.

URL: UNHCR/is/vid-hjalpum/aldradir.html
copyright © 2001-2012 UNHCR - all rights reserved.