United Nations High Commissioner for Refugees

Fatlaðir

People with Disabilities
© UNHCR/C. Shirley

Flóttamenn með fötlun eru enn að miklu leyti ósýnilegir og gleymdir í samfélögum  sem hrakin hafa verið á flótta.  Þrátt fyrir viðleitni til að hugsa betur um fólk sem er í hvað mestri hættu eru aðstoðar- og verndaraðgerðir sem hannaðar eru fyrir fjöldann sjaldan aðlagaðar sérstökum þörfum þeirra sem fatlaðir eru. Vegna skorts á greiningar- og tilvísunarferlum, ófullnægjandi þjónustu og lélegs aðgengis verða hundruðir þúsunda fatlaðra einstaklinga af þeirri mannúðaraðstoð sem þau eiga rétt á.

Fatlaðir einstaklingar eru sérstaklega varnarlausir gagnvart líkamlegri, kynferðislegri og tilfinningalegri misnotkun og gætu þurft á aukinni vernd að halda.  Skortur á næði undir erfiðum kringumstæðum, eins og skortur á aðgengi að salernis- og hreinlætisaðstöðu auka hættuna á misnotkun.  Fatlaðir einstaklingar verða oft einangraðir frá samfélagslífi. Þeir eiga til að mynda á hættu að vera skildir eftir þegar þeir sem í kringum þá eru flýja og geta átt í erfiðleikum með að nálgast fjölskyldur sínar í gegnum leitarþjónustur.

Flóttamannastofnun styður réttindi fatlaðra, bæði hvað varðar starfsfólk sitt og það fólk sem er undir verndarvæng stofnunarinnar.  Þegar samningur um réttindi fatlaðra einstaklinga tók gildi í maí 2008 tileinkaði Flóttamannastofnun sér meginatriði sáttmálans við verkefni.  Flóttamannastofnunin er einnig hluti af starfshóp Sameinuðu þjóðanna um fatlaða einstaklinga.

Samfélagsþróunar-, kynjaréttinda- og barnadeild Flóttamannastofnunar hefur þjálfað starfsfólk með mismunandi bakgrunn í að bera kennsl á fatlaða einstaklinga.  Þjálfunin lagði áherslu á aldur, kyn og hefðbundinn fjölbreytileika og þýðingarmikla þátttöku allra er málið varða í hugviti, útfærslu, vöktun og mat á öllum verkefnum Flóttamannastofnunar SÞ.

People with Disabilities

People with Disabilities

URL: UNHCR/is/vid-hjalpum/fatladir.html
copyright © 2001-2012 UNHCR - all rights reserved.