United Nations High Commissioner for Refugees

Flóttamenn

© UNHCR/H. Caux

Streyma yfir landamæri

Flóttamannasamningur Sameinuðu þjóðanna frá árinu 1951 skilgreinir að flóttamaður sé sá „er utan heimalands síns [...] af ástæðuríkum ótta við að verða ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar í sérstökum félagsmálaflokkum eða stjórnmálaskoðana, og getur ekki, eða vill ekki, vegna slíks ótta, færa sér í nyt vernd þess lands“.

Síðan 1951 hefur Flóttamannastofnun SÞ verndað og aðstoðað tugi milljóna flóttamanna og fundið varanlegar lausnir fyrir marga þeirra.  Mynstur búferlaflutninga hafa orðið flóknari í nútímanum, þar sem það eru ekki einungis flóttamenn sem flytjast heldur einnig aðra sem flytjast milli landa af efnahagslegum ástæðum..   En flóttamenn og farendur (e. migrants), þótt þeir ferðist á sama máta, eru ólíkir í grunninn og fá þess vegna er réttarstaða þeirra samkvæmt alþjóðalögum ekki sú sama.

Farendur, sérstaklega þeir sem flytja sig á milli landa af efnahagslegum ástæðum, velja að flytjast til þess að bæta framtíðarmöguleika þeirra sjálfra eða fjölskyldna þeirra.  Flóttamenn verða að flytja til þess að bjarga lífi sínu eða varðveita frelsi sitt.  Þeir njóta engrar verndar frá eigin ríki og oft er það reyndar þeirra eigin stjórnvöldsem hótar þeim ofsóknum.  Ef önnur lönd hleypa þeim ekki inn og hjálpa þeim ekki þegar þau eru komin til landsins, getur það verið dauðadómur fyrir flóttamennina – eða að flóttamennirnir eru dæmdir til óbærilegs lífs í skugga án viðurværis og án réttinda.


Hver er flóttamaður - Q&A

Flóttamenn – hverjir eru þeir? Spurningar og svör.

URL: UNHCR/is/vid-hjalpum/flottamenn.html
copyright © 2001-2012 UNHCR - all rights reserved.