United Nations High Commissioner for Refugees

Fólk án ríkisfangs

Stateless People
© UNHCR/ GEMUNU AMARASINGHE

Í leit að ríkisfangi

Þjóðerni eru lagaleg tengsl milli ríkis og einstaklings, og að vera ríkisfangslaus á við ástand einstaklings sem er ekki talin þegn eða borgari í neinu ríki.  Þótt ríkisfangslaust fólk sé stundum líka flóttamenn eru þessir tveir hópar ólíkir og þeir falla báðir undir umboð Flóttamannastofnunar SÞ.

Ríkisfangsleysi kemur til af mörgum ástæðum, til dæmis vegna mismununar gegn minnihlutahópum í lagasetningum um þjóðerni eða að misbrestur er á því að telja með alla íbúa sem þegna eða borgara þegar ríki verður sjálfstætt og einnig þegar það er ágreiningur um lög á milli ríkja.

Ríkisfangsleysi er stórt vandamál sem hefur áhrif á u.þ.b. 12 milljónir manna um allan heim.  Ríkisfangsleysi hefur líka hræðileg áhrif á líf einstaklinganna.  Það að eignast ríkisfang er nauðsynlegt hverjum einstaklingi fyrir fullgilda þátttöku í samfélagi og forsenda þess að njóta fullra mannréttinda.

Þótt mannréttindi eigi yfir höfuð að geta nýst öllum hafa afmörkuð réttindi eins og kosningaréttur verið einungis fyrir fólk með ríkisborgararétt í viðkomandi ríki.  Það sem vekur enn meiri ugg er það að mörg fleiri réttindi ríkisfangslauss fólks eru brotin í reynd. Ríkisfanglausir geta oft ekki orðið sér úti um persónuskilríki, þeir geta verið handteknir vegna þess að þeir eru ríkisfangslaus og hægt er að neita þeim um menntun og heilsugæslu eða þeir útilokaðir frá atvinnu.

Vegna þess hversu alvarlegt þetta vandamál er var á vettvangi Sameinuðu þjóðanna samþykktur samningur árið 1954 sem varðar stöðu ríkisfangslausra einstaklinga.

Samt er hægt að fyrirbyggja vandann með almennilegri löggjöf um ríkisborgararétt og starfshætti sem og  fæðingarskráningu í öllum ríkjum heims.  Flóttamannastofnun SÞ hefur fengið umboð að vinna með ríkisstjórnum í að fyrirbyggja það að ríkisfangsleysi eigi sér stað, og til að leysa þau mál sem hafa komið upp og til að vernda réttindi ríkisfangslausra.  Fyrsta skrefið er að fá ríki til að fullgilda og innleiða samninginn frá 1961 um fækkun ríkisfangslausra.

URL: UNHCR/is/vid-hjalpum/folk-an-rikisfangs.html
copyright © 2001-2012 UNHCR - all rights reserved.