United Nations High Commissioner for Refugees

Hælisleitendur

Asylum-seekers
© UNHCR

Oft er ruglað saman orðunum “hælisleitandi” og “flóttamaður”. Hælisleitandi er sá sem segist vera flóttamaður en ekki hefur enn verið skorið endanlega úr um hvort sú fullyrðing sé á rökum reist.

Í hverju landi fyrir sig hafa stjórnvöld komið á fót kerfi til að ákvarða hvaða hælisleitendur geti öðlast alþjóðlega vernd. Ef úrskurður er á þá vegu að viðkomandi sé ekki flóttamaður og þurfi ekki á neinni annarri alþjóðlegri vernd að halda, er hægt að senda hann til baka til heimalands síns, þ.e.a.s. ef málsmeðferðin hefur verið eðlileg.

Lykilatriði er að málsmeðferðin sé skilvirk. Fólk, sem veit að það getur ekki talist til flóttamanna, hefur minni áhuga á að sækja um hæli ef málsmeðferð er hröð og sanngjörn – og það gagnast bæði gistilandinu og þeim flóttamönnum sem kerfinu er ætlað að þjóna.

Þegar mjög margir flýja í einu (sem yfirleitt gerist í kjölfar stríðsátaka eða mikils ofbeldis en ekki vegna ofsókna gagnvart einstaklingum) er ekki hægt – og verður aldrei hægt – að taka einstaklingsbundin viðtöl við alla þá sem fara yfir landamæri viðkomandi lands. Það er heldur ekki nauðsynlegt vegna þess að yfirleitt er augljóst hvers vegna svo stórir hópar fólks leggja á flótta. Í ljósi þessa er öllum í hópnum veitt hæli og kallast þeir “prima facie flóttamenn” á lagamáli.

URL: UNHCR/is/vid-hjalpum/haelisleitendur.html
copyright © 2001-2012 UNHCR - all rights reserved.